Húnaskóli er nýr framsækinn skóli í mótun með 180 nemendur í 1. – 10. bekk. Skólinn leitast við að koma til móts við þarfir nemenda sinna á persónulegan og einstaklingsmiðaðan hátt. Lögð er áhersla á teymiskennslu. Gott samstarf er við nærsamfélagið svo sem íþróttafélögin og tónlistarskólann.
Kennarastöður
Staða umsjónarkennara á unglingastigi, 100% staða til eins árs frá 1. ágúst 2023 til 31. júlí 2024 vegna afleysingar. Kennslugreinar: íslenska, samfélagsfræði og stærðfræði.
Staða sérkennara, 100% staða frá 1. ágúst 2023. Æskilegt er að viðkomandi hafi framhaldsmenntun á sviði sérkennslu og kennslureynslu á því sviði. Mikilvægt er að viðkomandi sé tilbúinn að vinna með fjölbreyttum nemendahópi og kostur ef reynsla af kennslu á mið- og unglingastigi sé til staðar.
Staða textílmenntakennara, 65% staða (með hugsanlegum möguleika á 100% stöðu með kennslu í öðrum námsgreinum) til eins árs frá 1. ágúst 2023 til 31. júlí 2024 vegna afleysingar.
Staða kennara í hönnun og smíði, 65% staða (með hugsanlegum möguleika á 100% stöðu með kennslu í öðrum námsgreinum) frá 1. ágúst 2023.
Umsækjendur verða að hafa leyfisbréf til kennslu og kennslureynsla í grunnskóla æskileg. Leitað er eftir einstaklingum sem hafa góða skipulagshæfileika og mikla hæfni í mannlegum samskiptum. Áhersla er lögð á teymisvinnu og teymiskennslu, samþættingu námsgreina og þemabundin verkefni. Reynsla af samkennslu árganga og áhugi á þróunarstarfi eru mikilvæg.
Umsóknum þar sem fram kemur hvaða starf er verið að sækja um skal skilað ásamt kynningarbréfi og ferilskrá í tölvupósti á netfang Þórhöllu Guðbjartsdóttur skólastjóra, thorhalla@hunaskoli.is. Umsækjandi þarf að veita leyfi til upplýsingaöflunar úr sakaskrá. Nánari upplýsingar fást hjá skólastjóra í síma 892-4928. Umsóknarfrestur er til 30. maí.
Umsækjendur mega ekki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940. Umsækjendur mega ekki hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá um það hvort tiltekinn einstaklingur hafi hlotið dóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, að veittri fræðslu til hans þar að lútandi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga og KÍ.
Við Húnabraut 2a | 540 Húnabyggð Sími: 455-4750 Netfang: hunaskoli@hunaskoli.is |
Skólinn er opinn frá |
.