Húnaskóli auglýsir eftir skólaliða á Skóladagheimili í u.þ.b. 50% starf til maíloka 2025

Húnaskóli auglýsir eftir skólaliða á Skóladagheimili í u.þ.b. 50% starf til maíloka 2025

Um er að ræða tímabundið starf frá október 2024 til loka maí 2025, u.þ.b. 50% starf á
Skóladagheimili sem starfrækt er frá hádegi til klukkan fjögur. Starfið er mjög fjölbreytt þar
sem áhersla er lögð á mannleg samskipti bæði við börn og fullorðna. Starfið felst m.a. í því að
aðstoða nemendur í mötuneyti og gæta þeirra bæði úti og inni á meðan þeir dvelja á
Skóladagheimilinu. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Möguleiki er á
afleysingum í Húnaskóla á morgnana.

Umsóknum skal skilað ásamt kynningarbréfi og ferilskrá í tölvupósti á netfang Þórhöllu
Guðbjartsdóttur skólastjóra, thorhalla@hunaskoli.is. Umsækjandi þarf að veita leyfi til
upplýsingaöflunar úr sakaskrá. Nánari upplýsingar fást hjá skólastjóra í síma 4554750.
Umsóknarfrestur er til 22. október.

Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla
almennra hegningarlaga, nr. 19/1940 né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um
ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að
við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá um það hvort tiltekinn einstaklingur
hafi hlotið dóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, að veittri
fræðslu til hans þar að lútandi.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga og Kjalar stéttarfélags
starfsmanna í almannaþjónustu og Launanefndar sveitarfélaga og Starfsgreinasambands
Íslands.